Guðrún Hjartarr..!;)
18.08.2006 17:29:51 / gugga

AhA

Hæhæ!

Ókaay ég ákvað að vera sniðug og taka smá blogg hérna!:) það má segja að það sé heil eilífð síðan ég bloggaði síðast, hef bara ekki nennt þessu eða haft tíma. En það er ekkert spes að frétta af mér. Er komin með bílpróf sem er mjöög fínt, alltaf keyrandi útum allt!:D ætla svo líka að fara kaupa mér aukahluti á hann þegar mín á pening!:$ er svo heppin að eiga bræður og pabba sem eru allir í þessum bílum! :P

En anyways þá er skólinn að byrja í næstu viku og get ekki sagt annað en að mér hlakki bara þó nokkuð til!:D þá fer maður loksins að hafa eitthvað að gera og já...læra!!!:) tek það nú samt fram að ég er engin lærdómshestur bara langar að halda áfram með skólann!:)

En núna er komin helgi, svona síðasta helgin fyrir skólann! Eins gott að maður njóti hennar...menningarnótt á morgun og stefnan er að kíkja í bæinn og svonaaa:)

En ég hef ekki hugmynd hva ég geri í kvöld, kannski hitta stelpurnar? Það verður allavena að vera eitthvað því annars drepst ég er úr leiðindum hérna ein heima!!!

Aldrei get ég haft þetta blogg langt!

En hef ekkert meira að segja frá mér, alltaf bara búið að vera vinna, éta, sofa!! Svo var ég að sækja um hjá jóa fel og voonandi að þau vilji fá mann:)

En hef þetta ekki lengra.....................

BYEEEEEE:*********

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 15:52:28 / gugga

sunshine! :)

26994940.gif

 

Hæhæ ég ákvað að blogga aðeins, þar sem það er svo langt síðan ég skrifaði hérna síðast hehe.

Það er alveg geðveikt veður! Svona á þetta að vera á hverjum degi, ekki bara einu sinni í mánuði eins og búið er að vera síðustu mánuði!

En allavena þessi helgi var bara nokkuð góð fannst mér :) Á föstudaginn var þetta fína veður og ég var búin snemma að vinna, rúmlega 1 leytið fór síðan í fótbolta með þeim Vidda og Svavari í góða veðrinu:P  og um kvöldið fór ég svo út að borða á Fridays með Vidda litla og Svavari, sem var fínt bra, fórum so í keilu og sonna:) en svo var ekkert gert meira það kvöld.

 

 

 

Á laugardaginn fór ég svo í ræktina um morguninn, var eldhress eftir það:) en svo um kvöldið var ég að fara út að borða með Írisi og Herdísi, fórum aftur á Fridays hehe, svo kom Birna til okkar sem sat yfir okkur á meðan við borðuðum stærsta eftirrétt sem ég hef smakkað! :P hehe toomuch!

En allavena þegar við vorum loksins búnar að éta yfir okkur þá fórum við heim til Birnu og svo fór ég Íris, Herdís, jón og Hjálmar á akranes á írska daga og það var mikil stemning og ég skemmti mér bra ágætlega:) Það var heldur dýrt á ballið þarna, 3900! Þannig við ætluðum bra að sleppa að fara á það, en þá hittum við þarna einn furðulegann gaur sem kom okkur inná, og þurftum þá ekkert að borga eða neitt:P Elma var svo þarna eldhress eins og alltaf!;) Svo lögðum við á stað heim og ég var orðin heldur betur þreytt þegar ég kom heim :P

En ætla ekki að hafa þetta mikið lengra...fínasta helgi!:)

byee


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 17:05:53 / gugga

ó mæ

 

 


text_443.gif


Jæææja, kominn tími á að ég komi með eitt heitt blogg hérna!:) samt voðalega lítið að frétta af mér, ég er alveg hætt að nenna þessu bloggi! Ég ætla samt að reyna standa mig betur í þessu...:/ hehe...

Um helgina var lítið sem ekkert að gerast þannig ég fór bara uppí bústað og var á fullu þar að vinna við að setja niður tré og álíka! Veðrið var líka alveg að gera sig og var nú að vonast að það gæti haldist eitthvað en það er bara byrjað að rigna aftur, rok og e-ð:S Ég og Herdís erum samt sem áður búnar að fara þessa tvo daga sem var sól í sund;) hehe, ætluðum okkur nú fleiri en tvo daga!;)

Annars er maður bara að vinna núna, og aftur vinna. Mín ekki ennþá komin með bílprófið en tek bóklega næsta mánud, og þá styttist óðum í það, jeii.

Núna er ég samt bara með hausverk en ætla mér samt að fara í líkamsræktina eftir smá, þ.e.a.s. body compat, þið gætuð ekki trúað því hva ég er búin að geta troðið ofaní mig nammi síðustu daga! Þetta fylgir eitthvað:/

En meðan ég man, Viðar snær er að koma í kvöld til Íslands og verður í tvær vikur hérna hjá okkur!:) ooooooo, geeeeeðveikt gaman! Koss og knús;*

En soooooooorry get ekki haft þetta lengra, CYA8)

 

 


postman-a2.gif



» 3 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 20:51:14 / gugga

Afmæli í dag!:)13 júní..

Hææ, langt síðan ég bloggaði síðast, hef bara ekki nennt því:/ En ég ætla vera sniðug núna og blogga smá.

Ég er ekki búin að vera gera neitt voðalega spennandi síðustu daga, bara vinna og ökuskólinn. Ætlaði mér nú að ná prófinu í þessum mánuði, en ég er ekki viss um að það rætist:/ Því þessi ökukennari sem ég er hjá (Páll)  er ekki sá besti sem fæst:/ hann hefur engann áhuga á að kenna.

En ef þið vissuð ekki, þá á ég afmæli í dag:D Mætti í vinnunna í dag og það var meira segja sungið afmælissönginn! Svo þegar ég kom heim fór ég í sturtu og sona og beint í starfsviðtal hjá Pizza Hut í smáral., og það gekk bara mjög vel og hún vildi endilega sjá mig koma í prufu:) þannig ég ætla að mæta í prufu á fimmtud og sjá hvort mér líki vel þarna:)

Núna á eftir er ég að fara í bíó með Birnu og Herdísi, það er alltof langt síðan ég hitti þær almennilega:)! Ætlum á “she’s the man”!;) Hef beðið lengi eftir að sjá hana.

Ég ætla samt ekki að hafa þetta lengra í bili, kannski ég blogga fljótlega við tækifæri:)

 

 


05.jpg
 

 


Picture197.jpg


Bye;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 20:37:22 / gugga

....

Hææ!

Þessi helgi er búin að vera rosaleg:)

Í gær hélt ég “eurovision” party, sem heppnaðist bara þó nokkuð vel, það vantaði allavena ekki stemninguna og fólkið;) Horfði á eurovision og ég hélt nú alltaf með Úkraníu, það var floott lag! En Finnland komst semsagt áfram sem er bara skítsæmilegt:) En það var rosa gaman í gær, held að allir hafi skemmt sér;)

En svo var haldið niðrí bæ þegar allir voru farnir út, nema Jónsi blendfulli sem fékk að gista hjá mér. Svo þegar við komum niðrí bæ þá sleppti ég mér algjörlega á dansgólfinu, vil ekkert fara nánar útí það neitt:) Tókum svo taxa heim rúmlega 6 leytið eða svo, eftir að hafa beðið mjög lengi í biðröð úti! En þegar við komum heim var Jónsi ennþá sofandi heima, hrjótandiJ  

En ég er að setja myndir inn síðan í gær og svo eru líka nokkur myndbönd sem mig langar rosalega að setja inn á síðuna! Bara kann það ekki, ef einhver kann á svoleiðis má hann alveg benda mér á hvernig það er gert:)

Í dag er ég bara búin að vera gera nákvæmlega ekkert, ég og Bjarki vöknuðum og tókum til, Bjarki stóð sig mjög vel að hjálpa mér;) svo fór hann 3 leytið og svo kom Herdís að kíkja á mig eitthvað:) Annars er ég bara búin að sofa og liggja í leti:S Bjarki er so að keppa núna, ætlaði mér nú að horfa á hann spila, en ég hreinlega treysti mér engann vegin í það núna, kem og horfi á þig næst:)

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, langaði nú bara að koma því fram að myndirnar eru á leiðinni!: )

bye :!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 12:09:08 / gugga

hressss

Hæææ!!

Jæja, ég get semsagt ekki sofið lengur og ákvað að blogga bara í staðinn;)

Já, ég segi allt ágætt nema hausinn á mér er á við að springa!

En í gær hélt Steffí gellz uppá ammælið sitt, sem heppnaðist ótrúlega vel og ég skemmti mér mjög vel:) Birna og Herdís komu til mín og svo röltuðum við bara til Steffíar í góða veðrinu, drakk kannski heeeldur of mikið, sem kemur mér ekkert á óvart, langt síðan maður datt almennilega í það síðast:/ en svo um eitt leytið þá kom Bjarki að sækja mig, hehe veit ekki hva hann hefur haldið um mig þá...en ég fékk að heyra sögur daginn eftir!;) Held hann hafi þurft liggur við að bera mig upp stigana og hann meira segja svaf á gólfinu þar sem var ekki pláss fyrir frekjunni í mér!! hehe, æjjj sry Bjarki minn;** þú ert yndi!

En í kvöld er það svo teiti hjá mér, það verður vonandi stemning!:) Ætla mér nú samt ekki að taka jafnmikið á því og í gær! Hehe hef hreinlega ekki gott af því! Já ég lifi núna bara á grænmetisteningi, hef eeenga lyst á neinu öðru!

En ég er að setja inn myndir frá kvöldinu í gær;)

 

 



En nóg um djammið, ég er búin í prófunum og mér gekk bara mjög vel!:) Sumt kom mér bara hreinlega á óvart!:) En það er rosalega mikill léttir að vera komin í sumarfrí.

En á mánudaginn byrjar maður vinna í póstinum, með Herdísi og Elmu. Það verður ágætt held ég, svo skemmtilegt lið að vinna þarna!;)

Annars, eurovision keppnin var ekki alveg að gera sig! Sylvia var alveg útúr heiminum, hún var ekki að gera góða hluti þarna á sviðinu:/ Bara púað á Ísland! Líst ekkert mjög vel á það:/ en sonna er etta, maður veit ekki alveg hvaða land maður á halda með núna..sum lögin alveg glötuð sem komumst áfram!

En ég ætla fara að skella mér í sturtu og sonna, þarf að vakna aðeins! Hef bloggið ekki lengra.............

bye8)

 

b_carlsberg.jpg


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 11:08:10 / gugga

Sumarfrí!:D

Hæææ:) jæja þá er prófin BÚIN!:D og maður getur farið að einbeita sér af öðru eins og bílprófinu!:) þarf að fara drífa mig í ökuskóla tvo og klára þessa nokkra ökutíma sem ég á eftir, og finna mér draumbílinn;)

En á föstudaginn fór ég uppí bústað, sem reyndar maður hefði ekkert þurft að gera...:/ en á laugardaginn kom Bjarki allaleið uppí bústað sækja mig svo ég gæti farið með honum að passa frændsystkinin hans!!:) hehe “fórnaði” meira segja liverpool leik fyrir mig!!:S En hann semsagt hitti þarna nokkra í fjölskyldunnni hehe;) En allavena á leiðinni í bæinn keyptum við okkur ís í góða veðrinu, svo að passa...aaalgjörar dúllur!!!:) En það var mjög gaman að passa með honum Bjarka, sjá hvernig hann kann á börn!;) 

 En þar sem ég er búin í prófunum langar mér rosalega að fara í sund eða eitthvað álíka!! Ætla líka að fara versla mér FÖT!:):) hehe, já ætla að kaupa mér bíkíni, og einhver sæt föt=) Svo verð ég ein heima næstu helgi!! Og það verður eitthvað fön þá!;) eurovision og læti...það verður svaaaðalegt:)

 

 

63288.gif39074.gif46751.gif14925.gif

 

En því miður get ég ekki gert bloggið mitt jafnlangt og hjá þér Bjarki;) hehe en ég ætla þá að kveðja í bilii;**

 

 

 

39067.gif


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 13:23:30 / gugga

Gott veður!

Hæhæ, ég ákvað að taka mér smá pásu frá lærdómnum!:) og blogga...

Ég ætla að byrja á því að segja hva það er ógeðslega gott veður úti! Heitt og bjart:) leiðinlegt að maður geti ekki bara farið í sund og legið þar í allann dag! En ég er semsagt í næsta próf á miðvikudaginn og í ensku! Ég er ekkert rosalega góð í ensku og kann heldur ekkert að læra undir hana:S En jájá þetta verður skrautleg útkoma!

 

 



Á föstudaginn var ég bara eitthvað að læra held ég, svo hitti ég Bjarka og við fórum heim til hans að horfa á spólu sem við leigðum haha “a dirty shame”, hlógum heldur betur af henni!!;) Svo gisti ég bara hjá honum og hann skutlaði mér heim um morguninn því hann var að fara í vinnunna, hehe svo ætlaði ég mér að fara aftur að sofa þegar ég kom heim en þá var hún Sigríður Birna, litla krílið komin og þá gat ég engann veginn hugsað mér að fara sofa aftur!

Á laugardaginn þá fór ég semsagt austur með Svavari og litla krílinu, sem var bara mjööög fínt eins og alltaf:), fór ég heitapottinn sem var bara næs...um leið og ég fór ofaní kom allt liðið á eftir mér haha...um kvöldið kom Bragi og Jóhanna eftir að hafa verið að skemmta sér á hesbaki, þar að auki blindfull! Hehe, já Bragi alltaf jafn skrautlegur þegar hann er fullur:)...En þar sem allir voru orðnir svona rosalega klikkaðir í hausnum þá fórum ég og Elma og vinkona hennar Kamilla, á rúntinn á Selfoss og svo á Þorlákshöfn að ná í bíl..Ég bara verð að segja það hreint út að Selfoss er mesti hnakkabær sem ég hef á ævinni minni séð!! Hehe:), en þar hittu stelpurnar einhverja vini þeirra sem þær tóku svo með sér í bæinn...en ég fór aftur uppí bústað þar sem allir voru orðnir dauðir!

En það er svo gaman að þessu.....................Kannski maður fari í sund á eftir, með Herdísi og Birnu ef veðrið heldur svona áfram:) eeeen....

Rúmlega ein vika þangað til ég er búin í prófunum þ.e.a.s. 16 MAÍ!! :D

 

 

 



En ætla ekki að hafa þetta lengra.....bye

 

 


summer.gif



» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 20:12:16 / gugga

Prófin maðurrr...

Núna eru prófin í fullum gangi, nóg að gera hjá öllum væntanlega:) En ég er semsagt búin með eitt próf af fimm og það var jarðfræði sem ég held að hafi bara gengið þokkalega! En næsta próf er ekki fyrr en á miðvikud næsta hjá mér en ég er samt byrjuð aðeins að læra í félagsfræði, þar sem ég verð eiginlega að ganga vel í henni!:S En mér verður að ganga vel í öllu því mér var boðið vegleg verðlaun8|:D Hehe!!

En nóg um prófin:) í gær hitti ég hann Bjarka;) og við fórum í pool og auuuðvitað “vann” ég!!;) Hehe jájá það var mjög skemmtilegt..............Allavena þá er gaman að essu!!:) Svo leið og prófin eru búin ætla ég að einbeita mér að bílprófinu, yesyes:D alveg vonlaust að geta ekki verið eins og stelpurnar!! Keyrandi um allt...........Núna er ég bara ekki að gera neitt, er líklegast að fara hitta Bjarka:) hehe og svo veit ég ekki hva við gerum en það verður bara að koma í ljós........Þar sem ég hef ekkert meira að segja þá segi ég þetta gott!!!

 

 

 

 

A new teacher was trying to make use of her psychology courses. She started her class by saying, "Everyone who thinks you're stupid, stand up!"
After a few seconds, Little Johnny stood up. The teacher said, "Do you think you're stupid, Little Johnny?"

"No, ma'am, but I hate to see you standing there all by yourself!"


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 08:22:01 / gugga

Hæhæ.....

Jæja það er langt síðan ég bloggaði síðast! Hva kemur til, en allavena þá er maður mættur í skólann og er að fara í stærðfræði og verð til 5 í skólanum!:S En síðustu helgi tók ég því nú bara rólega eða þannig, fór í bíó með honum Bjarka á myndina “the hills have eyes” og hún er alveg mjög fín! Allavena brá manni ekkert lítið;) En svo var bara farið heim að horfa á einhverja þvílika steik í tv, einhver mynd sem Bjarki hafði gaman af!:D og svo fengum við okkur pizzu og ég held að við höfum verið seinustu viðskiptavinirnir hjá Dominos þá...hehe ;)

En semsagt svo á laugardaginn fór ég með Svavari og Sigríðu Birnu austur uppí bústað sem var nú bara svakalega fínt, náði að fara í heitapottinn og læti! J       En aftur á móti fór ég í keilu, á móti Bjarka!! það gekk ekki eins og ég ætlaði mér hehe..já hann rústaði mér gjörsamlega:P  Svo tóku við nokkra leiki í þythokkí sem var mjög gaman;) eftir það fórum við í “ísbíltúr” keyptum okkur ís! Á meðan Bjarki var svona 5 mínútur með hann var ég 20 mínútur að éta hann! :O:PEn svo núna er maður bara í skólanum og svona, nóg að gera! :S Ein vika eftir að skólanum og svo taka prófin við, er nú byrjuð eitthvað að læra og ætla líka að halda því áfram...

En tíminn að fara að byrja, nenni ekki að hafa þetta lengra...

Seejú:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 08:51:53 / gugga

Í skólanum...

Já, ég er hérna í íslensku tíma að gera góða hluti;)...En núna er páskafríið búið og maður byrjaður aftur í skólanum! Reyndar lærði ég mjög lítið í fríinu enda sé ég soldið eftir því sko:S En maður verður bara að byrja núna...Sumardagurinn fyrsti á morgun, þá er nú frí en ég veit ekki hva maður gerir!:)

En það er allt ágætt að frétta af mér annars, tilhlökkunin alveg að fara með mann því ég get ekki beðið eftir að komast í sumarfrí:D Ætli ég meiki nokkuð seinasta prófið8| hehe...En maður er til 5 í skólanum í dag....jei....og svo er planið að hrista af sér spikið í sporthúsinu! Svo veit ég ekki...:)

En þetta er nóg blogg í bili...þarf að fara klára ritgerðina í íslensku, en er búin að setja nokkrar myndir af árshátíðinni og mynd í "mynd vikunnar"...tók nú reyndar nokkrar myndir af árshátíðinni frá mýslunum;) eeeen....

bye


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 14:50:32 / gugga

Páskafrí...

Hæhæ, það er nú soldið síðan ég bloggaði síðast...

En núna er maður í páskafríi og ég er bara þó nokkuð sátt:D...en auðvitað þarf maður að læra líka en ég er ekki almennilega byrjuð:S ælta að reyna að fara taka tíma í það! En annars er gott að frétta hér!! :) Fór uppí bústað á miðvikudaginn og já það var bara fínt, svo gott að komast stundum útúr bænum. Ég fór svo heim í gær bara og Svavar var heima í róleg heitum..en svo skellti ég mér í bíó á “when a stranger calls” ýkt góð mynd:D það voru líka ótrúlega margir í bíó, troðfullur salur og ég held að ég hafi aldrei sitið eins stirð í bíó áður!! :P Svo ætlar maður aftur austur á morgun, þar sem ég fer með Svavari og Sigríðu Birnu:) ....verð þar líklegast yfir páskana! Taka því rólega, slappa af í heitapottinum með allri familiuni bara!;) En haldiði að mamma hafi ekki gefið mér páskaegg!! Númer 5:O hehe....Bragi og Jóhanna fengu sér ástarpáskaegg;) en það bráðnaði!!! Haha:D

En þetta fer allt að styttast! Prófin bara eiginlega strax eftir páskafrí og þá verður sko ekki stoppað að læra!! Svo eftir skólann verður bara gaman:D Bílprófið og læti...:) En ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra, þar sem ég hef nú ekkert mikið meira að segja! Ælti maður reyni ekki bara að vera soldið sniðug og læra e-ð um helgina svo maður skítur nú ekki alveg á sig þegar prófin koma!

En ég kveð í bili! :)

 

Annars gleðilega páska allir:D ;**

 

hopping20rabbit20-20animated.gif

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 23:06:43 / gugga

Árshátíð búin..:)

Jæja þá er Árshátíðin búin og var bara hörkugaman:D ....maturinn hjá okkur stelpunum var æðislegur og sömuleiðis ballið...maður sleppti sér kannski aðeins of mikið!;) hehe en já ég get ekki sagt annað en þetta fór bara mjög vel!:) En núna er maður kominn í “páskafrí” en maður þarf að læra mikið í þessu fríi þannig maður veit varla hvort maður geti kallað þetta frí....en maður fær að sofa aðeins út og svoleiðis...Eins og í morgun vaknaði ég rúmlega 10 hehe ...bara þó nokkuð hress:) og fór á fætur bara í rólegheitum og svonna...

En ég er að horfa á Idol núna og alveg að deyja úr þreytu....held að Snorri sé bara að vinna þetta;) hehe ....vooona það...hann er so mikið hotty! En ég var að frétta það að hún Elma mín er komin með bílprófið og vil ég óska henni innilega til hamingju með það!!;*** :):)

En hvað á maður svo að gera á morgun???! :D ....spuuurning.....Annars fer ég bráðum að setja myndir inn á síðuna...þegar maður hefur fengið þær allar!!;)

En ég kveð bara í bili!

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 21:09:25 / gugga

yesyes...

Jæja ég sit hérna heima og hlusta auðvitað á tónlist:) En já ég var búin klukkan 4 í skólanum og ég og Herdís skelltum okkur bara í ljós beint eftir skóla:D...Svo er ég bara búin að vera heima og Sigríður Birna var hérna á áðan...og hún sagði “Guðrún” mjög vel:D:D ...Hehe ;*

En Árshátíð mk á morgun....og já tilhlökkunin alveg að fara með mann!! Þarf ekki að vakna snemma á morgun:)....frí í tímunum hjá mér...:D Þannig ég get sofið úúút...hehe en ég er búin að kaupa mér kjól fyrir árshátíðina og er bara mjög sátt með hann...! En svo er leikritið Rocky Horror klukkan eitt og allir að skella sér á það!! :P:P Það verður hörkugaman....Svo fer maður örugglega með stelpunum að versla fyrir kvöldið;) Ætlum að mæta til Herdísar og verður þar og borðum og sonna....:) svo verður bara farið á árshátíðina sem verður örugglega ótrúleg stemming:P

En þar sem ég hef ekki meira að segja ....kveð ég í bili:D

Sé ykkur heit á árshátíðinni!!;*:D

 

Champagne.jpg

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 07:59:49 / gugga

.....

SÆTUST!!:lol::haha:


Picture018.jpg



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4